Skip to content

Kvenréttindafélag Íslands

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Forsíða arrow Um félagið arrow Viðburðir
Námskeið/fundir/ráðstefnur
8. mars 2010 Prenta Rafpóstur
Skrifað af Framkvæmdastjóri   
mánudagur, 15. febrúar 2010

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti - 8. mars

Sameiginlegur fundur fjölda samtaka verður í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 8.mars kl. 17 á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti undir yfirskriftinni Við getum betur. 8.marsfundir eru þekktir fyrir að vera kraftmiklir og eru mál stundum skoðuð frá nýju sjónarhorni. Fundurinn er öllum opinn. Staður og stund: Ráðhús Reykjavíkur, 8.mars kl. 17-18:30.

Dagskrá:

Andrés Ingi Jónsson: Framtíð ófæddra barna
Barbara Kristinsson: Við getum betur
Guðrún Hallgrímsdóttir: Hælisleitendur
Helga Sif Friðjónsdóttir: Heilsugæsla fyrir jaðarhópa
María S. Gunnarsdóttir: Framlag okkar til friðvænlegri heims
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir: Fjölmiðlar
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir: Kynbundið ofbeldi

Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.

 Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir

Fyrir áhugasama má lesa meira um sögu 8. mars:

Lesa meira...
 
Þjóðlegt eldhús 25. mars Prenta Rafpóstur
Skrifað af Framkvæmdastjóri   
miðvikudagur, 24. febrúar 2010

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Kvenréttindafélagi Íslands er það sönn ánægja að bjóða ykkur á annað kvöldið undir yfirskriftinni

 “þjóðlegt eldhús”

Eldaður verður saman góður, framandi og freistandi matur frá mismunandi heimshornum. Kynnt verður ný matargerð, farið í notkun á framandi kryddjurtum og sagt frá matarmenningu ýmissa þjóða í skemmtilegum félagsskap. Konur úr samtökunum kynna landið sitt og menningu í gegnum mat, sögur og myndir.

Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Dagsetning: 25. mars kl 19:30
Staður: Hallveigarstaðir við Túngötu 14, 101 Reykjavík
Þátttökugjald er 800 kr. og greiðist á staðnum. Matur og kaffi eru innifalin en hægt er að kaupa vín á staðnum á vægi verði.