|
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands fagnar því ákvæði í forvalsreglum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, sem kveður á um að ef hallar á konur í niðurstöðum forvals á sex fyrstu sætum lista, skuli uppröðun leiðrétt með fléttulista.
Ákvæði þetta er í samræmi við kvenfrelsisstefnu VG og er til þess fallið að leiðrétta kynjahallann sem hefur verið við lýði í gegnum tíðina. Þótt einungis eigi þetta við um VG í Reykjavík er innborgun hreyfingarinnar á hina sögulegu skuld kærkomið skref í átt að meira jafnræði kynjanna á sveitarstjórnarstigi.
|
|
|
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands vill minna á mikilvægi fæðingarorlofsins sem eins af máttarstólpum jafnréttis kynjanna á vinnumarkaði. Nauðsynlegt er að standa vörð um hið íslenska fæðingarorlof sem margar þjóðir líta til og hafa sem fyrirmynd, sérstaklega því ákvæði er lýtur að þriggja mánaða óframseljanlegu fæðingarorlofi feðra. Stjórn Kvenréttindafélags Íslands leggst því eindregið gegn því að réttur foreldra til fæðingarorlofs verði skertur í fyrirhuguðum niðurskurði opinberra útgjalda.
Hallveigarstöðum, 18. nóvember 2009
|
|
|
Framkvæmdastjórn KRFÍ lýsir eindregnum stuðningi við áskorun Femínistafélags Íslands til stjórnvalda um að súlustöðum verði lokað og að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um mansal verði hrint í framkvæmd strax.
Hallveigarstöðum, 20. október 2009
|
|
|
Kvenréttindafélag Íslands fagnar því að meirihluti stjórnmálaflokkanna sem eiga sæti á Alþingi, eru með jafna kynjaskiptingu í þingflokkum sínum. Einnig fagnar KRFÍ því sögulega háa hlutfalli kvenna á Alþingi, en tæp 43% þeirra sem nú taka þar sæti eru konur.
Undanfarin ár hefur Kvenréttindafélag Íslands ítrekað bent á að stjórnmálaflokkarnir beri ábyrgð á jöfnuði kynjanna innan eigin raða. Það er því ánægjulegt að sjá að nokkrir þeirra hafa tekið þessa ábyrgð alvarlega eins og einnig kom í ljós í jafnri kynjaskiptingu minnihlutastjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Ísland skipar sér nú í efstu sæti ríkja heims hvað varðar jafna kynjaskiptingu á þingi og gefur með því til kynna að Íslendingar taka jafnréttismálin alvarlega.
Hallveigarstöðum 17. apríl 2009
|
|
|
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands fagnar því að á Alþingi hafi verið samþykkt lagafrumvarp sem gerir kaup á vændi refsivert athæfi. Áralöng barátta kvennasamtaka á Íslandi hefur borið árangur og því ber að fagna. Vændi er ein birtingarmynd kynferðisofbeldis gagnvart konum og hefur sú skilgreining nú hlotið viðurkenningu í formi þessara nýju laga enda ætti ábyrgðin með réttu að vera hjá þeim sem ofbeldinu beita. Kvenréttindafélag Íslands fagnar því einnig að Ísland skuli vera þriðja landið í heiminum til að setja slík lög og skipa sér þannig í framlínu ríkja sem taka kvenfrelsi og kvenréttindi alvarlega.
Hallveigarstöðum, 18. apríl 2009
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 16 |