|
Skrifað af Framkvæmdastjóri
|
|
mánudagur, 08. mars 2010 |
|
4. mars sl. samþykkti Alþingi lög sem gera m.a. ráð fyrir því að í stjórnum opinberra hlutafélaga og einkahlutafélaga, með fleiri en þrjá stjórnarmenn, skuli hlutfall hvors kyns í stjórninni vera að minnsta kosti 40% í lok árs 2013. Lögin í heild sinni má lesa á slóðinni http://www.althingi.is/altext/138/s/0752.html
|
|
|
Skrifað af Framkvæmdastjóri
|
|
föstudagur, 26. febrúar 2010 |
|
8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti.
Af því tilefni taka fjöldi samtaka sig saman um að halda dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, mánudaginn 8.mars 2010 kl.17-18:30 undir yfirskriftinni:
Við getum betur
Erindi flytja:
Andrés Ingi Jónsson: Framtíð ófæddra barna
Barbara Kristinsson: Við getum betur
Guðrún Hallgrímsdóttir: Hælisleitendur
Helga Sif Friðjónsdóttir: Heilsugæsla fyrir jaðarhópa
María S. Gunnarsdóttir: Framlag okkar til friðvænlegri heims
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir: Fjölmiðlar
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir: Kynbundið ofbeldi
Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir.
|
|
|
Skrifað af Framkvæmdastjóri
|
|
miðvikudagur, 24. febrúar 2010 |
|
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Kvenréttindafélagi Íslands er það sönn ánægja að bjóða ykkur á fyrsta kvöldið undir yfirskriftinni
“þjóðlegt eldhús”
Eldaður verður saman góður, framandi og freistandi matur frá mismunandi heimshornum. Kynnt verður ný matargerð, farið í notkun á framandi kryddjurtum og sagt frá matarmenningu ýmissa þjóða í skemmtilegum félagsskap. Konur úr samtökunum kynna landið sitt og menningu í gegnum mat, sögur og myndir.
Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Dagsetning: 25. febrúar kl 19:30
Staður: Hallveigarstaðir við Túngötu 14, 101 Reykjavík
Þátttökugjald er 800 kr. og greiðist á staðnum. Matur og kaffi eru innifalin en hægt er að kaupa vín á staðnum á vægi verði.
Á þessu fyrsta matarkvöldi verður eldaður matur frá Kolumbíu. Næsta kvöld verður haldið fimttudaginn 25. mars nk.
|
|
|
Skrifað af Framkvæmdastjóri
|
|
mánudagur, 22. febrúar 2010 |
|
Á konudaginn tóku konur formlega við Öðlingskyndlinum úr höndum karla, sem hafa kynnt átakið og bók Þórdísa Elvu Þorvaldsdóttur: Á mannamáli, frá bóndeginum síðastliðnum. Hér eftir mun átakið og ágóði af sölu bókarinnar renna til Kvennahreyfingarinnar sem undirbýr stóran viðburð í kringum kvennafrídaginn 25. október nk.
35 ár eru síðan konur hittust á Lækjartorgi 24. október og úr varð einn stærti útifundur á Íslandi sem vakti alþjóðlega athygli. Í ár ber daginn upp á sunnudag og því hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn á mánudeginum 25. október. Skemmst er að minnast góðrar þátttöku á 30 ára afmæli dagsins árið 2005 þegar um 50 þúsund manns söfnuðust saman í miðborg Reykjavíkur og er ætlunin að endurtaka leikinn með myndarbrag og þátttöku erlendra kvenna líka, sem boðnar verða til alþjóðlegrar ráðstefnu sunnudaginn 24. október.
Að þessu sinni beinast sjónir kvennahreyfingarinnar að kynbundnu ofbeldi, eins svartasta bletts íslensks samfélags. Það er átakanlegt að segja frá því að það sem öll samfélög heimsins eiga sameiginlegt er ofbeldi gegn konum og ber það glöggt merki um það að jafnrétti karla og kvenna er hvergi náð.
Við hvetjum alla til að kynna sér bók Þórdísar Elvu: Ofbeldi á Íslandi - Á mannamáli sem kom út árið 2009 og sem var m.a. tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Sjá www.odlingurinn.is
|
|
|
Skrifað af Framkvæmdastjóri
|
|
mánudagur, 15. febrúar 2010 |
|
Sunnudaginn 21. febrúar - á konudaginn - bjóða félögin á Hallveigarstöðum: Bandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til dagsrkár í tilefni dagsins.
Dagskráin hefst kl. 15:00 og verður átakið Öðlingurinn kynnt, Helga Guðrún Jónasdóttir, varaformaður KRF'I kynnir kvennafrídaginn 25. október 2010 en verið er að undirbúa fjöldasamkomu, alþjóðlega ráðstefnu og sitthvað fleira. Einnig munu félögin kynna starfsemi sína og verkefni, m.a. kynna KÍ-konur húfuverkefni sitt og BKR-konur fá Helgu Þóreyju Björnsdóttur til að greina frá könnun sinni á aðstæðum útigangsfólks í Reykjavík.
Alllir velkomnir.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 244 |