|
Jafnréttisráð hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs:
Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins undirrituðu samstarfssamning þann 15.maí 2009. Markmið hans er að hlutfall hvors kyns í forystusveit íslensks atvinnulífs verði sem næst 40% í árslok 2013. Samningsaðilar hafa undirstrikað nauðsyn þess að þetta markmið náist, enda benda reynsla og kannanir til þess að það sé farsælast. Fulltrúar allra stjórnmálaafla sem eiga fulltrúa á Alþingi skrifa undir samninginn og lýsa þannig stuðningi við markmið hans.
Nú fer sá árstími í hönd þar sem gera má bragarbót. Aðalfundir framundan og því kjörið tækifæri til breytinga. Jafnt kynjahlutfall í stjórn íslensks atvinnulífs er mikilvægt skref í átt til jafnréttis og atvinnulífi landsins til heilla.
Jafnréttisráð skorar því á alla sem undirrituðu samstarfssamninginn að beita áhrifum sínum til að markmið samningsins náist sem fyrst.
|
|
|
Fræðslu- og fjáröflunarátakið Öðlingurinn 2010 er hafið með pompi og prakt! Átakið er tvíþætt: Fyrri hluti (sem stendur yfir núna og til konudagsins 21. febrúar nk.) vekur athygli á Neyðarmóttökunni og safnar fé handa henni með sölu á bókinni Ofbeldi á Íslandi - Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, sem kom út árið 2009. Seinni hluti átaksins (eftir 21. febrúar) er helgaður kvennahreyfingunni til fésöfnunar fyrir kvennafrídaginn 24. október 2010 (sem verður reyndar haldinn 25. október í ár), eftir sem áður með sölu á bókinni.
Við hjá KRFÍ höfum áður mælt með bókinni enda þörf lesning allra sem láta sig samfélagið, réttlæti og mannréttindi varða. Ef þú átt ekki nú þegar eintak, getur þú tryggt þér það á www.odlingurinn.is og lagt góðu málefni lið í leiðinni.
Kynntu þér málið á www.odlingurinn.is
|
|
|
Jafnréttisstofa, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, EDDA - öndvegissetur og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar standa fyrir málþingi um kyn og loftlagsbreytingar, föstudaginn 5. febrúar kl. 14:30-16:45. Málþingið fer fram í Háskóla Íslands, stofu 101 í Lögbergi og er öllum opið.
Dagskrá:
*Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra flytur ávarp
*Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu: „Kynjavíddir í alþjóðlegri umræðu um loftlagsbreytingar"
*Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í guðfræðilegri siðfræði: „Loftslagsbreytingar í guðfræðilegri siðfræði: Femínísk orðræða um lífvænan náttúruskilning"
*Anna Karlsdóttir, lektor í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði „Strandbyggðir á Norðurslóðum"
*Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í mannvistarlandfræði. „Loftslagsbreytingar og kynjuð þróunarorðræða um Afríku: Gamalt stef í nýjum umbúðum?"
Pallborðsumræður
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 8 - 14 af 235 |