|
Auglýst er eftir umsóknum vegna ársins 2009. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknir frá atvinnulausum konum 50 ára og eldri sem hófu nám eða hyggja á nám á árinu 2009.
Um getur verið að ræða háskólanám, nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða nám á styttri starfsbrautum og verknámsbrautum. Styrkupphæð árið 2009 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.
Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
* Skattaskýrsla fyrir árið 2008
* Staðfesting frá Vinnumálastofnun um atvinnuleysi
* Staðfesting á skólavist (ef hún liggur fyrir)
Umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðunni. Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi stundar eða hyggst stunda.
Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
Umsóknareyðublað 2009
Menningar og minningasjóður kvenna var stofnaður 27. september 1941 í minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur með því að börn hennar lögðu dánargjöf móður sinnar í sjóð, en hugmyndina að stofnun sjóðsins hafði Bríet átt. Hlutverk sjóðsins er fyrst og fremst að styrkja konur til náms, jafnt hér á landi sem erlendis með náms- og ferðastyrkjum. Ennfremur að veita konum styrk til ritstarfa eða verðlaunaritgerðir, einkum um þjóðfélagsmál er varða áhugamál kvenna. Styrkjum úr sjóðnum er úthlutað einu sinni á ári. Sjóðurinn er í vörslu Kvenréttindafélags Íslands.
|
|
|
Eftir páska, föstudaginn 17. apríl nk. mun KRFÍ halda súpufund í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu. Umfjöllunarefnið að þessu sinni verður kyn og umhverfismál. Hafa umhverfisbreytingar mismunandi áhrif á kynin? Haga kynin sér eins í umhverfistilliti? Hvað geta konur gert til þess að vera fyrirmyndir í umhverfismálum?
Fundurinn hefst kl. 12:10 og í boði er súpa og brauð. Allir velkomir. Enginn aðgangseyrir.
|
|
|
Föstudaginn 27. mars kl. 14:00-16:00 verður dagskrá á Hótel Borg í Reykjavík í tilefni af 30 ára kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Dagskráin er öllum opin og er frítt inn.
- Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu: Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna: Sátt um samfélagsbreytingar.
- Brynhildur Flóvenz, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands: Eru konur ekki menn? Mikilvægi sértækra mannréttindasamninga á borð við Kvennasáttmálann.
- Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands: Skuggaskýrslur: Aðhaldshlutverk frjálsra félagasamtaka.
- Rachael Lorna Johnsone, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri: Going Private: State responsibility for domestic violence under the CEDAW.
- Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi: Hvers vegna þarf kvennasáttmála? Myndasýning.
Fundarstjóri Gréta Gunnarsdóttir, sviðsstjóri í utanríkisráðuneytinu.
Að fundinum standa: KRFÍ, RIKK, UNIFEM á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Janfréttisstofa, Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarfið og Jafnréttisráð.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 64 - 70 af 235 |