|
Samfélagssjóður AlheimsAuðar var stofnaður í mars sl. og mun úthlutun úr sjóðnum fara fram 19. júní ár hvert. Umsóknarfrestur í ár um styrk úr sjóðnum er 29. maí nk. Markmið sjóðsins er að hvetja konur til athafna og frumkvæðis og verður til framtíðar sérstaklega horft til þess að ljá konum í þróunarlöndum styrk. Sjá nánar á slóðinni http://www.audurcapital.is/um-audi/alheimsaudur/
|
|
|
Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum vegna ársins 2009, en ákveðið hefur verið að útvíkka frestinn og skilyrðin fyrir umsækjendur. Sjóðurinn er opinn fyrir umsóknir frá atvinnulausum konum 30 ára og eldri sem hófu nám eða hyggja á nám á árinu 2009.
Um getur verið að ræða háskólanám, nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða nám á styttri starfsbrautum og verknámsbrautum. Styrkupphæð árið 2009 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir.
Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
•· Skattaskýrsla fyrir árið 2008
•· Staðfesting frá Vinnumálastofnun um atvinnuleysi
•· Staðfesting á skólavist (ef hún liggur fyrir)
Umsóknareyðublöð má nálgast hér að neðan. Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi hyggst stunda.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
Umsóknareyðublað (2)
|
|
|
KRFÍ fagnar því að meirihluti flokkanna sem nú taka sæti á Alþingi eru með jafna kynjaskiptingu í þingflokkum sínum. Þetta eru Samfylking, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Borgarahreyfingin. Einnig fagnar KRFÍ því sögulega háa hlutfalli kvenna á Alþingi en tæp 43% þeirra sem nú taka þar sæti eru konur.
Undanfarin ár hefur KRFÍ ítrekað bent á það að flokkarnir beri sjálfir ábyrgð á jöfnuði kynjanna innan síns flokks. Það er því ánægjulegt að sjá að nokkrir flokkanna hafa tekið þessa ábyrgð alvarlega eins og kom í ljós í jafnri kynjaskiptingu minnihlutastjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Ísland skipar sér nú í efstu sæti ríkja heims hvað varðar jafna kynjaskiptingu á þingi og sýnir með því fram á að Íslendingar taka jafnréttismálin alvarlega.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 57 - 63 af 234 |