Skip to content

Kvenréttindafélag Íslands

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Jafnrétti nú!

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Mannréttindaskrifstofa Íslands standa saman að átakinu Jafnrétti nú! í samstarfi við KRFÍ ásamt fleiri félagasamtök. Markmið átaksins er að vinna gegn mismunun í samfélaginu.

Áhersla er lögð á að vekja almenning til vitundar um rétt allra til jafnra tækifæra í samfélaginu óháð uppruna, kynferði, aldri, fötlun, kynhneigð eða trú. Átakið samanstendur af ýmsum viðburðum og rannsóknum sem nánar er fjallað um á vef verkefnisins.

Sjá nánar á heimasíðu verkefnisins: http://www.felagsmalaraduneyti.is/vefir/JafnrettiNu/

 
KYN OG KREPPA - má nýta kreppuna til aukins kynjajafnréttis?

Norræn ráðstefna KRFÍ um ný sóknarfæri í jafnréttismálum verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík, laugardaginn 26. september nk. kl. 10.00-17.00

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra ávarpar ráðstefnuna en aðrir frummælendur verða:

* Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Janfréttisstofu
* Sigríður Snævarr, sendiherra
* Gyða Margrét Pétursdóttir, doktorsnemi í kynjafræði við HÍ
* Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital
* Carita Peltonen, sérfræðingur í jafnréttismálum     

Pallborðsumræður, hádegisverður og vinnuhópar*

*Hópur 1 (á skandinavísku): "Kreppan gefur körlum séns": Þátttaka verkalýðsfélaganna - leiðir til aukins kynjajafnréttis. Stjórnandi Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ.

*Hópur 2 (á ensku): Hugmyndasmiðja: Hvernig nýtum við okkur kreppuna til aukins jafnréttis kynjanna? Stjórnandi Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ

Fundarstjóri: Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta

Ráðstefnan fer fram á skandinavísku og ensku. Allir velkomnir. Þátttökugjald kr. 1.000 (innifalinn er hádegisverður, kaffi og drykkur í móttöku KRFÍ að lokinni dagsrká).

MUNIÐ SKRÁNINGU Á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Áheitum safnað

Kvenréttindafélag Íslands er eitt þeirra félaga sem hægt er að hlaupa til góðs fyrir í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst nk. Bæði er hægt að heita á hlaupara sem hlaupa í þágu félagsins eða hlaupa sjálfur til styrktar félaginu. Allar nánari upplýsingar má finna á www.marathon.is

Hlaupum til góðs og stuðnings KRFÍ!

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 50 - 56 af 235

Fréttapóstlisti

Nafn:
Netfang:
Til að aðstoða KRFI við að halda ruslpósti í skefjum vinsamlega skrifaðu niður upplýsingarnar sem þú sérð á myndinni í dálkinn hérna fyrir neðan.