Skip to content

Kvenréttindafélag Íslands

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Morgunverðarfundur um aðgerðir gegn mansali
Utanríkisráðuneytið býður til morgunverðarfundar ásamt dóms- og mannréttindaráðuneytinu um aðgerðir gegn mansali í tilefni af komu Evu Biaudet, mansalsfulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Fundurinn fer fram á ensku og verður haldinn á Hótel Borg, föstudaginn 30. október nk. kl. 09.00. Fundarstjóri: Gréta Gunnarsdóttir sendiherra og sviðsstjóri alþjóða og öryggissviðs utanríkisráðuneytisins. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur.
 
Stuðningur við áskorun FÍ

Framkvæmdastjórn KRFÍ lýsir eindregnum stuðningi við áskorun Femínistafélags Íslands til stjórnvalda um að súlustöðum verði lokað og að framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um mansal verði hrint í framkvæmd strax.

Hallveigarstöðum, 20. október 2009

 
Formlegur sáttmáli um jafnrétti kvenna og karla
Borgarstjórn hefur samþykkti að skrifa undir Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla. Þau sveitarfélög sem undirrita sáttmálann skuldbinda sig formlega til að virða grundvallarregluna um jafnrétti kvenna og karla. Það er Jafnréttisstofa sem veitir sveitarfélögum faglega ráðleggingar varðandi innleiðingu slíkra sáttmála.
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 36 - 42 af 234

Fréttapóstlisti

Nafn:
Netfang:
Til að aðstoða KRFI við að halda ruslpósti í skefjum vinsamlega skrifaðu niður upplýsingarnar sem þú sérð á myndinni í dálkinn hérna fyrir neðan.