Alþjóðlega ráðstefnan A Place for Prostitution? Gender Equality and Respect in Modern Societies var haldin á Grand Hótel 8. júní s.l. Fjórir frummælendur veltu fyrir sér hvernig vændi og virðing fara saman í jafnréttisþjóðfélagi og sköpuðust líflegar umræður í kjölfar erindanna.
Hér að neðan má lesa erindi frummælenda:
|
|
Að venju halda íslenskar konur upp á 19. júní hátíðlegan. Í ár eru liðin 87 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Hátíðarhöld á vegum KRFÍ verða hefðbundin og verður dagskráin eftirfarandi:
Kl.
- 16:15 Kvennasöguganga undir leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur, sagnfræðings. Gangan hefst við Kvennaskólann í Reykjavík. Gengið verður um
Þingholtin, Kvosina og endar við Hallveigarstaði v/Túngötu.
- 17:15 Móttaka Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Bandalags kvenna í Reykjavík í samkomusal Hallveigarstaða, kjallara. Erindi flytja:
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra
- Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri 19. júní
- 18:00 Veitingar og kaffispjall.
Komið og fagnið deginum með okkur. Allir velkomnir
|
|
|
Ráðstefnan sem haldin vará Grand Hótel föstudaginn 8, júní s.l. var mjög vel sótt. Hægt verður að nálgast erindi pallborðsþátttakenda síðar í vikunni hér á heimasíðunni.
KRFÍ vill þakka góðan stuðning Heilbrigðisráðuneytis, Menntamálaráðuneytis og Umhverfisráðuneytis sem styrktu félagið til að halda ráðstefnuna.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 31 32 33 34 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 225 - 231 af 234 |