|
"Kvenréttindafélag Íslands tekur undir áskorun Femínistafélags Íslands til stjórnvalda um að endurskoða verklagsreglur og framkvæmd í umgengnis- og forsjármálum. Leggja verður mun meiri áherslu á að hlusta á það sem börnin sjálf vilja en nú er gert; þeirra rödd og mannréttindi ber að virða. Ef grunur leikur á ofbeldi af hálfu annars foreldris verða börnin að fá að njóta vafans. Velferð þeirra og hagur skal ávallt vera hafður í fyrirrúmi."
Hallveigarstöðum 8. desember 2009
|
|
|
Sameiginlegur Jólafundur KRFÍ og Kvennasögusafns Íslands verður ahldinn fimmtudaginn 10. desember nk. kl. 20.00 í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu í Reykjavík.
Dagskrá
20.00 *Margrét K. Sverrisdóttir, formaður KRFÍ flytur ávarp
*Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands opnar formlega síðu um
Laufeyju Valdimarsdóttur á heimasíðu Kvennasögusafnsins
*Hreindís Ylva Valdimarsdóttir syngur nokkur lög
*Þordís Elva Þorvaldsdóttir kynnir bók sína Á mannamáli
*Elín Albertsdóttir les úr bók sinni Íslenska undrabarnið -
saga Þórunnar Ashkenazy
21.00 *Kaffihlé
*Jólahappdrætti KRFÍ
*Fundarlok kl. 22:00.
Allir félagar KRFÍ eru velkomnir ásamt gestum þeirra.
|
|
|
Á norrænu ráðstefnu KRFÍ 26. september sl. var fjallað um kreppuna og áhrif hennar á konur og karla og kynjajafnréttið. Í meðfylgjandi skýrslu er sagt frá erindum fyrirlesara á ráðstefnunni ásamt niðurstöðum úr vinnuhópunum tveimur sem voru undir stjórn Maríönnu Traustadóttur jafnréttisfulltrúa ASÍ annarsvegar og Silju Báru Ómarsdóttur aðjúnkts við stjórnamálafræðideild Háskóla Íslands hinsvegar. Einnig má leita frekari upplýsinga hjá framkvæmdastjóra KRFÍ: halldora[hjá]krfi.is
Kyn & kreppa
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 22 - 28 af 235 |