Skip to content

Kvenréttindafélag Íslands

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size
Kvenréttindafélag Íslands
Kvenréttindafélag Íslands vinnur að því að bæta réttindi kvenna. Félagið var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og var hún fyrsti formaður félagsins og gegndi þeirri stöðu í 20 ár. Markmið félagsins við stofnun var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.
 
Aðalfundur KRFÍ

Aðalfundur KRFÍ verður haldinn í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu, fimmtudaginn 18. mars kl. 17.00-19.00. Á dagsrká eru venjulega aðalfundarstörf. Allir félagar KRFÍ eru velkomnir á fundinn og allir skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á fundinum. Formaður félagsins er Margrét K. Sverrisdóttir sem tók við embættinu á aðalfundi árið 2008 sem varaformaður, þar sem þáverandi formaður hætti. Margrét var síðan kjörin formaður til tveggja ára á síðasta aðalfundi árið 2009. Aðrir í stjórn félagsins eru til kjörs nú og hafa allar stjórnarkonur gefið kost á sér til áframhaldandi starfa.

Félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og fylgjast með starfseminni sem verður farið yfir í máli og tölum. Léttar veitingar.

 

 
Ný kynjakvótalög samþykkt á Alþingi
4. mars sl. samþykkti Alþingi lög sem gera m.a. ráð fyrir því að í stjórnum opinberra hlutafélaga og einkahlutafélaga, með fleiri en þrjá stjórnarmenn, skuli hlutfall hvors kyns í stjórninni vera að minnsta kosti 40% í lok árs 2013. Lögin í heild sinni má lesa á slóðinni http://www.althingi.is/altext/138/s/0752.html
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 7 af 235

Fréttapóstlisti

Nafn:
Netfang:
Til að aðstoða KRFI við að halda ruslpósti í skefjum vinsamlega skrifaðu niður upplýsingarnar sem þú sérð á myndinni í dálkinn hérna fyrir neðan.