|
Kvenréttindafélag Íslands vinnur að því að bæta réttindi kvenna. Félagið var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og var hún fyrsti formaður félagsins og gegndi þeirri stöðu í 20 ár. Markmið félagsins við stofnun var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.
|
|
|
4. mars sl. samþykkti Alþingi lög sem gera m.a. ráð fyrir því að í stjórnum opinberra hlutafélaga og einkahlutafélaga, með fleiri en þrjá stjórnarmenn, skuli hlutfall hvors kyns í stjórninni vera að minnsta kosti 40% í lok árs 2013. Lögin í heild sinni má lesa á slóðinni http://www.althingi.is/altext/138/s/0752.html
|
|
|
8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti.
Af því tilefni taka fjöldi samtaka sig saman um að halda dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, mánudaginn 8.mars 2010 kl.17-18:30 undir yfirskriftinni:
Við getum betur
Erindi flytja:
Andrés Ingi Jónsson: Framtíð ófæddra barna
Barbara Kristinsson: Við getum betur
Guðrún Hallgrímsdóttir: Hælisleitendur
Helga Sif Friðjónsdóttir: Heilsugæsla fyrir jaðarhópa
María S. Gunnarsdóttir: Framlag okkar til friðvænlegri heims
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir: Fjölmiðlar
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir: Kynbundið ofbeldi
Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 7 af 234 |